Friday, September 30, 2011

One man´s brick, is another man´s brack

Dagurinn í dag fór að mestu leyti í að heimsækja endurvinnslustöð - eða sorpgeymslustöð - eða brick brack - eða eitthvað svoleiðis....  Þarna ægir öllu saman - en rosalega var samt gaman að skoða þetta og margt sem ég hefði alveg getað hugsað mér að eiga... En ég lét samt eiga sig að kaupa nokkuð - enda BARA með EINA ferðatösku með mér..
Sigurþór var að leita eftir hurðum en því miður voru engar sem pössuðu fyrir hann... svo við skruppum í alvörubúð og þar  sá hluti sem ég hefði sko alveg getað hugsað mér að eignast - en - ég er sko stolt af hvað ég hélt fast í budduna og keypti ekki svo mikið  sem einn snaga...
Á morgun erum við að spá í að skreppa á markað í bæ hér ekki langt frá, sem heitir Kalamunda  - það er eitthvað við markaði sem dregur mig á staðinn....
En hér koma nokkrar myndir  af sorpstöðinni og alvöru búðinni - þið megið giska á hvort er hvað...;°)...



                                        Þetta er konan sem rekur staðinn - takið eftir hattinum...
              Væri ekki amalegt að eiga eina svona eldavél - væri hægt að sletta í form... kostar bara 300 þús..
Væri alve til í svona baðkar...

Wednesday, September 28, 2011

He who would travel happily must travel light. Antoine de Saint-Exupery (1900 - 1944

..... so true - so true - og það er þess vegna sem ég tók BARA eina tösku með mér til Ástralíu.. Ég hef nú reyndar farið í nokkrar búðir - en það er bara eins og ég sé búin að tapa getunni til að eyða peningum í dót fyrir sjálfa mig.... svei mér þá - ég sé eitthvað sem mig alveg bráðlangar í, og svohætti ég við áður en ég kemst með dótið á afgreiðslukassann.... algerlega óþolandi... eða þannig..
Nema hvað - ég hef nú svo sem ekkert farið víða ennþá - því kvefið hertók mig daginn eftir að ég lenti hérna - svo ég hef að mestu eytt dögunum heima við - reynt að hjálpa til við húsverkin og svoleiðis...  sem er bara fínt ...
Svo er búið að vera frekar kalt - það er að segja - á mælikvarða Ástrala.. Við Íslendingar myndum nú alveg hafa þegið 15-20 gráðu hita í sumar - allavega fyrir norðan.. en það er svo skrítið - að hér virkar þetta miklu miklu kaldara - meira eins og 5 stiga hiti heima..
En það fer nú að verða breyting á - spáin framundan er bara fín - og nú erum við hér á 30 Hall road, að leita uppi vettlinga, vaðstígvél, garðhrífur og sköfur - því það er kominn kláði í puttana þegar við horfum út um gluggana á allann gróðurinn sem sprettur vel í allri rigningunni undanfarið... Og mér finnst það sko ekki leiðinlegt, sérstaklega þar sem ekki var mikið um svoleiðis vinnu á Króknum i sumar.


Þetta eru svo heimilisdýrin hérna, hundurinn Millie og kettirnir Robert og Yusimi, en Ysimi er alveg sérstaklega almennilegur köttur að því leyti, að hann á það til að færa okkur lifandi mýs, svona í þakkarskyni fyrir almennilegheitin í hans garð... þetta vekur litla gleði hjá mér, enda er Sigurþór  farinn að fjarlægja þær bara þeygjandi og hljóðalaust áður en ég rekst á þær... Þetta er náttúrulega óttalegt vanþakklæti  í mér, en ég bara ræð ekki við þetta, köngulær, flugur og eðlur eru í fínu lagi, en MÝS, ég bara hata þær...

Gangð á Guðs vegum....

Sunday, September 25, 2011

Down Under

Jæja, þá er rétt að prófa að "bloggga" - þarf greinilega að setjast niður í góðu tómi og læra á þetta fyrirbæri...
Nema hvað, ég er komin til Perth - það tók mig vel á 3ja dag - fór gegnum London - Kuala Lumpur og Perth...
Það var yndislegt að lenda hérna á flugvellinum - hreint eins og að koma heim... Unnur tók á móti mér - veðrið var fallegt og allt að fara í blóma.. Mikið hefur rignt hér í vetur, þannig að gróðurinn var sérlega vel á sig kominn.. þetta er besti tíminn til að koma til Ástralíu.
Ég sem sé kom hingað á fimmtudag, 22. sept. 2011 - og dagarnir að mestu farið í að slaka sér í gírinn - ná áttum hvað varðar tímamismun og þess háttar.  Einhvers staðar hef ég svo náð mér í kvef - er núna með nefrennsli og bólgin augu... kannski er partur af þessu - fræofnæmi - væri eftir öðru að maður næði í svoleiðis á gamals aldri...
Í gærkvöldi fórum við á fjáröflunar-samkomu hjá Burmíska félaginu hérna í Perth - matur og dans - allt  upp á gamla móðinn.  Þarna kemur fólk saman, borðar góðan mat, dansar og skemmtir sér, og ágóðinn rennur allur til fólks í Burma.  Hilmar og Sandra voru með okkur ásamt Kerry, vinkonu Unnar og Sigurþórs..
Í dag, sunnudag, er svo bara afslöppun og reyna  að ná úr sér kvefinu - mig nefnilega klæjar í puttana að komast út í garð hjá Unni og rífa upp arfa - voru ekki margir dagarnir heima á Krók sem það var hægt.
Læt þetta duga í bili - sjá hvernig þetta kemur allt út hérna á blogginu...
                                            Maturinn var sterkur - en svakalega góður
                                                            Kerry, Sigurþór og Unnur
                                      Sandra ásamt konunum sem sáu um að skammta matinn


                                     Hilmar var aðstoðarkokkur  í eldhúsinu - sjáið þið pottinn....
                                                                  Línudans í "fúll svíng"