Wednesday, September 28, 2011

He who would travel happily must travel light. Antoine de Saint-Exupery (1900 - 1944

..... so true - so true - og það er þess vegna sem ég tók BARA eina tösku með mér til Ástralíu.. Ég hef nú reyndar farið í nokkrar búðir - en það er bara eins og ég sé búin að tapa getunni til að eyða peningum í dót fyrir sjálfa mig.... svei mér þá - ég sé eitthvað sem mig alveg bráðlangar í, og svohætti ég við áður en ég kemst með dótið á afgreiðslukassann.... algerlega óþolandi... eða þannig..
Nema hvað - ég hef nú svo sem ekkert farið víða ennþá - því kvefið hertók mig daginn eftir að ég lenti hérna - svo ég hef að mestu eytt dögunum heima við - reynt að hjálpa til við húsverkin og svoleiðis...  sem er bara fínt ...
Svo er búið að vera frekar kalt - það er að segja - á mælikvarða Ástrala.. Við Íslendingar myndum nú alveg hafa þegið 15-20 gráðu hita í sumar - allavega fyrir norðan.. en það er svo skrítið - að hér virkar þetta miklu miklu kaldara - meira eins og 5 stiga hiti heima..
En það fer nú að verða breyting á - spáin framundan er bara fín - og nú erum við hér á 30 Hall road, að leita uppi vettlinga, vaðstígvél, garðhrífur og sköfur - því það er kominn kláði í puttana þegar við horfum út um gluggana á allann gróðurinn sem sprettur vel í allri rigningunni undanfarið... Og mér finnst það sko ekki leiðinlegt, sérstaklega þar sem ekki var mikið um svoleiðis vinnu á Króknum i sumar.


Þetta eru svo heimilisdýrin hérna, hundurinn Millie og kettirnir Robert og Yusimi, en Ysimi er alveg sérstaklega almennilegur köttur að því leyti, að hann á það til að færa okkur lifandi mýs, svona í þakkarskyni fyrir almennilegheitin í hans garð... þetta vekur litla gleði hjá mér, enda er Sigurþór  farinn að fjarlægja þær bara þeygjandi og hljóðalaust áður en ég rekst á þær... Þetta er náttúrulega óttalegt vanþakklæti  í mér, en ég bara ræð ekki við þetta, köngulær, flugur og eðlur eru í fínu lagi, en MÝS, ég bara hata þær...

Gangð á Guðs vegum....

No comments:

Post a Comment