..... tengdapabbi var vanur að segja að ég væri "veðurkráka" - það kæmi alltaf rok og rigning þegar ég
birtist í Kópavoginum... þetta sannaðist þegar við Finnur ákvaðum að fara í smá ferðalag hér Down Under... Meiningin var að skreppa inn í landið - keyra til Kalgoorlie, sem er gamall gullnámubær, við vorum búin að plana ferðina - 3 dagar - ákveða hvað við ætluðum að skoða - hvar við ætluðum að gista og allt þar fram eftir götunum... Nema hvað, þegar við vorum að leggja af stað, gerði þetta líka litla þrumu-og eldingaveður - allt fór á flot á leiðinni sem við ætluðum og viðvaranir voru lesnar í útvarpinu!!! Nú voru góð ráð dýr, við vorum búin að pakka í töskur og komin í ferðagírinn - ekki alveg tilbúin að fara bara heim aftur - svo við ákváðum að keyra upp með ströndinni - veðrið átti bara að ná rétt "upp" fyrir Perth... en það var eins og það elti okkur bara - ef við stoppuðum þá náði það í rassgatið á okkur - og á okkur skall ÞVÍLÍK rigning að við sáum varla út um framrúðuna... þessu linnti svo ekki fyrr en við vorum búin að keyra í eina 3 klukkutíma - shitturinn - ég held bara að tengdapabbi hafi rétt fyrir sér... ;°)...

..loksins þegar látunum linnti, stoppuðum við á bensínstöð og heilsuðum upp á þessa EMU fugla - alveg stórskrítnir...
.... við ákváðum að stoppa í litlum bæ sem heitir Dongarra (borið fram DONGRA!!), og ætluðum að fá hótelherbergi - en þar var allt fullt á öllum stöðum - vegna þess að kona hafði myrt 2 dætur sínar og síðan framið sjálfsmorð - allir gististaðir fullir af lögreglu - "forensic" fólki - sjónvarps- og blaðafólki..
En svo vorum við svo "HEPPIN" að rekast á eitt hótel sem hafði EITT herbergi eftir - þetta var í gömlu klaustri og leit alveg sæmilega vel út - utan frá séð... en restin af gestunum voru löggur og rannsóknarfólk - svo við vorum í miðri lögreglurannsókn í morðmáli... segið svo að maður lifi ekki spennandi lífi.....
En það koma nú svolítið skrítinn svipur á okkur, þegar við sáum herbergið - sem við þurftum að borga 12. þús. kr. fyrir... dæmi nú hver fyrir sig...
...stærsti plúsinn var kannski að það var "MINIBAR" - TV - og LOFTKÆLING í herberginu... sbr. myndin hér að ofan...
....daginn eftir ákváðum við að keyra aðeins inn í landið og fara leiðir sem við höfðum ekki farið áður - á þessum vegum eru mikið flutningar - kallaðir "road-train" - sem eru vörubílar með 3-4 tengivagna í eftirdragi.... ekki mjög gaman að lenda við hliðina á þeim - né mæta...
... við vorum á bílaleigubíl sem var hinn þægilegasti - Toyota Camry - og hann kostaði okkur ekki nema um 30 þús fyrir 4 daga...
.... á leið inn í landið keyrðum við framhjá korn- og hveitiökrum - svo langt sem augað eygði - spáðum mikið í það hvað lengi væri verið að slá þarna...;°)...
...þessir bændur sátu og spjölluðu við vegkantinn - og höfðu litlar áhyggjur af umferðinni sem þeyttist framhjá...
...við keyrðum framhjá nokkrum svona stöðvum - þar sem korninu er safnað í heljarninna þrær - þarna sést ekki nema lítið brot af lengjunni...
....við lentum í því að bjarga þessari eðlu frá því að verða undir bíl - konuræfill sem hafði stoppað - fékk hana undir bílinn hjá sér og það tók smá tíma að fá hana undan honum...
... hér eru bændur byrjaðir að "slá" kornakurinn - kannski ekki bestu vinnaðstæður - all á kafi í ryki og skít... en engar "smá" vélar...
Næsti bær sem við ákváðum að stoppa í og gista, heitir Moora - og þar tók ekki betra við með að fá herbergi... Finnur vildi endilega gista á svona "gömlu" hóteli með stórum svölum - hefur örugglega viljað fá tilfinningu fyrir hvernig "HÓRUNUM" leið þegar þær röðuðu sér við handriðið og tældu menn upp á herbergin í den tid...;°)...
Mér leist nú ekkert á hótelið sem við fundum - en ákvað samt að slá til og við leigðum herbergi fyrir aðrar 12 þús kr...
Framhliðin leit svo sem ekkert illa út - en við þurftum að leggja bílnum á bak við og fara þeim megin inn í hótelið - framhjá ruslatunnunum og draslinu - þegar inn var komið blöstu við veggir með bárujáni og á járninu voru - ja Finnur sagði ryðblettir - en ég held því fram að þetta hafi verið myglublettir... og það lá við að ég sneri við og segði NEI...
...svona litu nú svalirnar út og opið er inn í herbergið sem við leigðum dýrum dómum - ef þið skoðið vel getið þið séð skítinn á borðinu.... ekki mikið fyrir að þurrka af þetta lið... herbergið var eins og klefi í rússneskri afvötnunarstöð - ekki að ég hafi heimsótt slíka stöð - en ímynda mér að hún líti svona út... máttu samt eiga það að "fataskápurinn" var VEL loftræstur...
....baðherbergisaðstaðan var sameiginleg fyrir alla hæðina - og þar keyrði heldur betur um þverbak - skil bara ekki hvernig fólki dettur í hug að bjóða upp á þetta - og ég hafði alls enga löngun til að fara í sturtu - þó svo að full þörf væri á því eftir hitasvækju dagsins...
....ég ákvað bara að breiða upp yfir haus og sofa þetta allt frá mér - yfirgáfum svo þetta "fína" hótel fyrir morgunmat - tókum ekki séns á að hann liti nokkuð skár út en sjálft húsið....
....ekki spurning að maður tók eftir þessari auglýsingu.... vorum bara að fara í hina áttina og nenntum ekki að snúa við...
... ég tók þessa mynd alveg sérstaklega fyrir Þórdísi - ekkert smá flottur litur á beljunum - væri til í að fá svona lit í hárið Dísa mín...
Unnur og Sigurþór buðu okkur út að borða þegar við komum heim - svona í tilefni þess að ég átti afmæli - aldur er afstæður - við fórum að rosalega skemmtilegan stað sem heitir Roly on the Ridge - þar horfir maður út yfir fallegan dal ....
....ég fékk mér nautasteik - og bara varð að smella mynd - flott skreyting - nú er ég að verða eins og Sigga frænka - alltaf að taka myndir af því sem ég borða...;°)... góðar Sigga mín....
....Unnur tók mynd þegar komið var með dessertinn til mín - og aldrei þessu vant - þá bara myndast ég alveg ágætlega - enda í góðu kompaníi með Finni mínum og....
..... með Unni og Sigurþór - takk fyrir mig - þið eruð algerar perlur og ekki slæmt að eiga svona vini...
.... að kvöldi 9. des. buðum við Hilmari, Söndru, Jónka syni þeirra, Jómba og Lóu í indverskan dinner - þetta var alveg yndislegt kvöld og gaman að hittast öll saman...
.... kvöldið eftir héldum við svo "litlu jólin" - þar sem Anna var á leið til Íslands yfir jól og áramót og Finnur fer í vinnuna eftir viku... við vorum með alveg EKTA íslenskt - lambahrygg, brúnaðar kartöflur, sósu, Ora grænar, rauðkál og svo auðvitað - malt og appelsín, sem by the way - ég FÉKK ekki að smakka þar sem maltölið hér er yfir þeirri prósentutölu sem ég þoli í áfengi...;°)... lét mér duga sódavatnið....
... eftir matinn eyddum við svo kvöldinu í að fylgjast með tunglmyrkvanum - en því miður er ég ekki með nógu góða vél til að taka svona myndir - svo þessar verða að duga.... Tunglið varð á endanum appelsínugult - stórkostlegt að sjá þetta svona í "beinni"...
.... En að öllu gríni og gamni slepptu - þá hefur síðasta rúma vika ekki verið neitt auðveld - þegar sorglegir atburðir gerast í fjölskyldunni, er erfitt að vera svona langt í burtu frá sínum nánustu - geta ekki tekið utan um og huggað.... En það er gott til þess að vita að ég á tvær frábærar stelpur og tvo frábæra tengdasyni - sem standa saman og eru til staðar hvert fyrir annað, einmitt þegar á þarf að halda. Ég er óendanlega þakklát fyrir þau öll og barnabörnin mín - og á þeim öllum get ég séð, að okkur Finni hefur tekist eitthvað gott og frábært í þessu lífi okkar...
....þið öll eruð það sem heldur mér gangandi og í góðum gír til að takast á við það sem lífið býður upp á hverju sinni - ELSKA YKKUR ÖLL og hlakka til að sjá ykkur...