....það tóks loksins að veiða köngulóna sem hafði hreiðrað um sig í loftinu hjá okkur, hvarf svo en birtist svo allt í einu á miðjum eldhússkáp.... það er hægt að umbera þær ef þær halda sig í hæfilegri fjarlægð - en að koma niður undir matarborðið - NEI - þá segjum við stopp.... alla vega - ég veiddi hana í plastdollu - hún var nú mun minni um sig en manni sýndist áður... henni var svo bara hent út í skóginn hér fyrir utan... mér varð þó svolítið um og ó þegar Anna kom í heimsókn um kvöldið og uppfræddi okkur um "Huntsman" köngulær - þær eiga það til að bíta og eru "svolítið" eitraðar - en - ég er á lífi...;°)........ rakst á þennan heiðursmann niður í bæ um daginn - datt nú Stebbi mágur í hug... Stebbi, þetta er hugmynd fyrir þig - ef þú vilt hætta á sjónum - kallinn stórgræddi þarna, enda góður á nikkuna eins og þú...
...Anna tók að sér að skreyta jólatréð - þó það væri bara byrjun desember... hún er á leið til Íslands, ætlar að eyða jólum og áramótum á Króknum...
.... það voru haldnir tónleikar í skólanum hjá Unni - kveðjutónleikar áður en þau flytja í nýja skólann.. krakkarnir fóru yfir tímabilin í sögu skólans, og voru alveg óhræddi við að standa fyrir framan fjölda manns...
...þarna voru samankomin afar, ömmur, pabbar, mömmur, frændur og frænkur - gamlir nemendur skólans - kennarar og skólastjórar -
...þetta er leiksvæði krakkanna - fer ekki mikið fyrir leiktækjum - skógurinn er þeirra heimavöllur...
.....þarna stýrir Unnur sínum krökkum rétta leið niður af sviðinu og þau hlýddu skilyrðislaust...;°)...
.....um 140 börn í "Kindy" - held að það sé nokkurs konar forskóli - stóðu og sungu á sviðinu í einu - flott hjá þeim...
.... að lokum tróðu núverandi kennarar upp og sungu titillagið úr Star Trek - klædd eins og áhöfnin á - ja nú man ég ekki hvað fjárans geimskipið hét - Enterprise eða....???? því miður var farið að skyggja og ég náði ekki betri mynd en þetta.... Unnur er falin einhvers staðar á bakvið - erfitt að ná mynd af henni stundum...;°)...
....eftir tónleikana fórum við út að borða á þennan stað - finnst þetta nú ekki mjög aðlaðandi nafn á veitingastað - en.... steikin var góð...
Finnur er kominn Down Under - ætlar að vera hjá mér til 16. des. - við skruppum aðeins í bæinn og það eina sem keypt var - var þessi flotti hattur úr kengúruskinni... en svipurinn á honum mætti vera glaðlegri - eða hvað finnst ykkur...?? ;°)...
No comments:
Post a Comment