Nema hvað, ég er komin til Perth - það tók mig vel á 3ja dag - fór gegnum London - Kuala Lumpur og Perth...
Það var yndislegt að lenda hérna á flugvellinum - hreint eins og að koma heim... Unnur tók á móti mér - veðrið var fallegt og allt að fara í blóma.. Mikið hefur rignt hér í vetur, þannig að gróðurinn var sérlega vel á sig kominn.. þetta er besti tíminn til að koma til Ástralíu.
Ég sem sé kom hingað á fimmtudag, 22. sept. 2011 - og dagarnir að mestu farið í að slaka sér í gírinn - ná áttum hvað varðar tímamismun og þess háttar. Einhvers staðar hef ég svo náð mér í kvef - er núna með nefrennsli og bólgin augu... kannski er partur af þessu - fræofnæmi - væri eftir öðru að maður næði í svoleiðis á gamals aldri...
Í gærkvöldi fórum við á fjáröflunar-samkomu hjá Burmíska félaginu hérna í Perth - matur og dans - allt upp á gamla móðinn. Þarna kemur fólk saman, borðar góðan mat, dansar og skemmtir sér, og ágóðinn rennur allur til fólks í Burma. Hilmar og Sandra voru með okkur ásamt Kerry, vinkonu Unnar og Sigurþórs..
Í dag, sunnudag, er svo bara afslöppun og reyna að ná úr sér kvefinu - mig nefnilega klæjar í puttana að komast út í garð hjá Unni og rífa upp arfa - voru ekki margir dagarnir heima á Krók sem það var hægt.
Læt þetta duga í bili - sjá hvernig þetta kemur allt út hérna á blogginu...
Maturinn var sterkur - en svakalega góður
Kerry, Sigurþór og Unnur Sandra ásamt konunum sem sáu um að skammta matinn
Línudans í "fúll svíng"
frábært hjá þér Jóhanna! Hlakka til að fylgjast með
ReplyDelete