Lífið gengur sinn vanagang hér í Rolystone - búið að rigna mikið, sem er gott fyrir gróðurinn (þessi er handa þér Steina - þekkir þessa setningu vel)... en það er hlýtt, alla vega á daginn, stundum skítkalt á nóttunni, undarlegt þar sem hitamælirinn stendur í 15-20° - það þykir nú þokkalegur hiti á klakanum..Ég hef gert töluvert af því að þvælast um Perth og nágrenni - annað hvort keyrandi á bílnum hennar Unnar - með stýrið öfugu megin;°)... eða í lest og strætó - mest finnst mér gaman að setjast einhvers staðar með góðan kaffibolla og horfa á fólkið sem framhjá fer - það er svo magnað hvað það eru til margar "sortir" af manneskjum - sumar skrítnar - sumar "eðlilegar" - sumar hvítar - aðrar brúnar - sumar tala við sjálfa sig - aðrar hreyta ónotum í hina - sumir láta sig ekki munar um að berja konuna sína á almannafæri og enginn skiptir sér af, ekki einu sinni löggan... samanber þessi með gítarinn, hann kallaði hana öllum illum nöfnum og gaf henni svo einn á´ann, en hún hélt nú samt áfram að vera hjá honum, svo ég hætti bara að vorkenna henni og labbaði í burtu eins og allir hinir.... "þangað vill hesturinn, sem hann er kvaldastur" - segir einhvers staðar...
...þessi er tekin á sama stað - þetta er Bjölluturninn - Bell Tower - sem er á bökkum Swan River... þetta er eitt af aðal einkennum borgarinnar og sá staður sem flestir ferðamenn skoða...
"The Bell Tower includes the twelve bells of St Martin-in-the-Fields, which are recorded as being in existence from before the 14th century and recast in the 16th century by Queen Elizabeth I. The bells were again recast between 1725 and 1770 by three generations of the Rudhall family of bell founders from Gloucester in England, under the order of the Prince of Wales who was later crowned as King George II. They are one of the few sets of royal bells and are the only ones known to have left England"
...við rákumst líka á þetta skilti - svona rétt ef einhver væri til í að kaupa höll - 2007 hvað...!!!
...og auðvitað þurfum við að borða svona stöku sinnum allavega - þetta var æðislegur "lunch"...
...tyrkneskt brauð - grænmetisrúllur - djúpsteiktar rækjur - kjúklingur og steiktar núðlur - capers-sýrður rjómi...
...hér á heimilinu búa 2 kettir - þetta er "Júsímí" - fannst hún svo fyndin þegar hún sofnaði hjá tusku-tígrisdýrinu hennar Unnar...
...ég lallaði inn á markað um daginn og sá þar þessi líka fallegu strútsegg - mikið skrambi hefði ég verið til í að prófa eitt - en... svo voru þau líka bara ódýr - eki nema 8$ - ca. 960 kr...!!
...þessi "aborigani" sat og spilaði - eða blés - í þetta "DIDGERIDOO" - svakalega heillandi hljóð sem kemur úr þessu ....
...rakst á þennan karekter - mikið dj.... var ég orðin pirruð á kjaftaganginum í honum - hann blaðraði sífellt um hvað hann ætlaði að gera - og ég - asninn - beið og beið - svona til að geta tekið mynd - tók mig klukkutíma að taka þessar tvær myndir .... gaf honum sko ekki krónu fyrir...
...þetta er orðið gott í bili - nú er sólin farin að skína og hitinn að stíga - merkilegir dagar framundan hér í Perth, því Elísabet Englandsdrottning er hér í heimsókn - það verður eitt allsherjar útigrill á laugardaginn - henni til heiðurs - áætlað er að um 100 þús. manns komi ... held að við grillum bara hérna heima og horfum á hana í sjónvarpinu - sjáum hana betur þar...