Á leiðinni keyrðum við fram hjá snjóhvítum sandöldum, sem í fjarlægð litu út eins og stórir snjóhólar - þarna rennir fólk sér á "sandboards" eins og við á Íslandi rennum okkur niður skíðabrekkur á "snowboards"...
...við vorum líka svo heppnar að rekast á Emu - sem var að vappa meðfram veginum - alltaf gaman að sjá dýrin í sínu náttúrulega umhverfi.
Næsta stopp var að skoða The Pinnacels, sem eru "limestone" súlur sem standa upp úr sandinum - furðuleg fyrirbæri...
Lake Thetis var næst á dagskrá - þar eru litli gígar á botninum - þetta eru kallaðir "Stromalites" - er bara ekki alveg nógu vel að mér til að útskýra þessi fyrir - en það er alltaf hægt að Googla það;°)...
Við keyrðum inn í Geraldton er langt var liðið á daginn - þar byrjuðum við á að renna niður á höfn, nema hvað... Endeavour lá þar við bryggju - en á því skipi kom fyrsti landnámsmaðurinn sem settist að í Sydney, cpt. Cook.. Engin smáfleyta þetta...
Hótelið sem við gistum á heitir Ocean Beach og er steinsnar frá ströndinni - bara huggulegt hótel þó stjörnugjöfin sé eitthvað skrítin - það er sagt 4ja stjörnu - en yrði tæplega talið nema 2ja stjörnu heima... svo sem ekki að marka það, þar sem við erum nú svo sérstök þjóð...
Við vorum í Geraldton í tvær nætur og skoðuðum okkur um - en aðallega vorum við bara afslappaðar og "easy going"...
Þegar við vorum að fara frá hótelinu eftir seinni nóttina, vildi ekki betur til en að stærðar járnhlið réðst á bilinn hennar Unnar og tók næstum hurðina af í heilu lagi... það tók til að losa þetta í sundur og skella hurðinni á sinn stað - en nú er ekki hægt að opna hana aftur...
Við enduðum svo dvölina í Geraldton á því að skoða minnismerki um ástralska herskipið H.M.A.S. Sidney II, en það var skotið niður af þjóðverjum í seinni heimstyrjöldinni fyrir utan Geraldton... Þar fórust 645 manns.... Margir hafa leitað að flakinu, en lítið fundist, samt eitthvað... Hjá minnismerkinu er stytta af konu sem horfir til hafs og bíður eiginmannsins.... Minnismerkið sjálft er líkan af stafni skipsins og svo hálfkúla með 645 fuglum - sem tákna þá sem fórust..
Við keyrðum sem leið lá til Northamton og Chapman Valley - á leiðinni rákumst við á safn um innflytjendur á þessum slóðum - við ákváðum að skoða - svolítið neyðarlegt var að þegar við komum inn og ætluðum að borga - konu sem var sennilega komin vel undir nírætt - þá leit hún á okkur og sagði: "...two seniors???" - sem þýðir: "...tveir eldri borgarar!!!".... maður ætti kannski að fara að líta í spegil annars lagið, svo maður átti sig á hvað langt er liðið á ævina...;°)...
Er við höfðum skoðað safnið og ætluðum út í bíl, kallaði á okkur maður sem var að bardúsa í garðinum, hann vildi endilega sýna okkur garðinn og endaði með því að við vorum með fangið fullt af alls kyns jurtum þegar við kvöddum.... svona gerist bara í sveitinni...
Við keyrðum framá alveg hreint undarlegt fyrirbæri - The Leaning Tree - það er tré sem hefur aðlagað sig rokinu á svæðinu og ákveðið að betra væri að vaxa bara eftir jörðinni....Við höfðum ætlað að skoða áströlsk villiblóm á þessu svæði, en þar sem við vorum heldur seint á ferðinni, og blómin flest horfin - ákváðum við að koma bara við á "Wildflower Farm" eða Villiblómabæ... þar eru ræktuð alls kyns blóm - þau eru síðan þurrkuð og seld um allan heim í skreytingar..
Þegar við keyrðum frá bænum, flaug í gegnum hugann á mér - ferðalag okkar Steinu upp á Flúðir... þar reyndi mikið á þolinmæði dóttur minnar, en hún þurfti að hlusta á móður sína syngja "....þangað liggur beinn og breiður vegur..." - þetta væri ekki svo slæmt, ef ekki væri fyrir það, að ég er gersamlega laglaus!!! Svo Steina mín, þessi mynd er fyrir þig....
Við gistum næstu nótt í Moora sem er sérlega fallegur bær - ekta sveitabær... Næsta dag ákváðum við að koma við í Benedictine klaustri - þar rakst ég á svolítið sem minnti mig sérlega mikið á Siggu frænku - I wonder WHY....;°)...
Þetta var alveg einstaklega skemmtileg og fræðandi ferð - og þó manni finnist í fljótu bragði, að landslagið sé allt eins - þá er það sko ekki rétt..... maður sér alltaf eitthvað nýtt - inni á milli trjánna....
Ég er búin að búa til aðra síðu - fyrir allar myndirnar sem ég get ekki komið fyrir hérna... þið sjáið tvo "..tabs" efst uppi - annar er HOME - hinn er myndir...
No comments:
Post a Comment