Monday, October 17, 2011

Blóm og matur....

Við Unnur skruppum niður í miðbæinn - svona rétt til að kíkja á fólkið þar - alveg makalaust hvað það eru til margar útgáfur af sérstöku fólki...

Þetta "listaverk" virkaði nú á mig eins og risastór blaðra.... skil ekki svona hörmung á annars fallegu torgi..

Séð yfir torgið fyrir fram járnbrautarstöðin í Perth...
Ég vildi stundum óska að ég hefði myndavel með aðdráttarlinsu - kann ekki við að vera að taka myndir af fólki, sem sér hvað ég er að gera...  Maður rekst á "aboriginal" fólk - sem  oft er ekki alveg sátt við þetta "hvíta drasl" sem er búið að yfirtaka þeirra svæði... mætti konu sem bölvaði öllum sem gengu framhjá og hafði yfir setningar sem ekki eru prenthæfar hér...

Unnur ákvað að elda handa mér sérréttinn sinn - kræklinga í skel - var nú ekki allveg viss um að þetta væri "minn" matur - en lét það nú ekki á mig fá - enda ákveðin í að prófa allt sem hægt er að prófa - eða þannig..

Nema hvað - ég skipti snarlega um skoðun - þetta reyndist vera algert yummi   - hún er snillingur að elda hún frænka mín .... á sko eftir að prófa þetta heima....

Á sunnudaginn fórum við í hádegismat á kínverskt veitingahús með Kerry vinkonu þeirra - svolítið sérstakt - því maður  pantar ekki mat á venjulegan máta - heldur koma þjónar með mat - ganga á hvert borð og spyrja hverjir vilja svona ....
Eftir matinn ákváðum við að fara og skoða garð - þó það væri 36° hiti!!!! Garðurinn var rosalega fallegur - hjón höfðu keypt gamal hús - kallað Hillman House - með stórum garði sem allur var í órækt.... það er búið að taka þau 12 ár að koma garðinum í það horf sem hann er í nú...




Við höfum líka verið að vinna í garðinum  - og erum bara sátt við árangurinn - en eigum nú slatta eftir samt... en þetta er alveg ótrúlega gaman - og nú rignir fjandann ráðalausann - svo ég þarf ekki að vökva í dag..
O jæja - þá er bara að skreppa í Carusel og kíkka í búðir - góð afsökun þessi rigning...;°)..





2 comments: