Veðrið hefur verið - ekki alveg eins og það er vant að vera - við þekkjum það frá Króknum - ekkert sumar í fyrrasumar...
Hér hefur rignt meira í byrjun sumars - en gerst hefur í áraraðir - og meira að segja hafa komið haglél sem skemmt hefur bíla og hús...
Það varð nú ekki svo slæmt hjá okkur - en það rigndi fjandann ráðalausann, meðan Sigurþór grillaði einn daginn....
...veit ekki alveg hvað mér finnst um þennan klæðnað á þeim gamla - svo óvön að sjá hann svona...
....það var smádýragarður í einu Mollinum sem við Unnur heimsóttum fyrir jólin - og þessi líka flotti Bambi - eða á ég að segja FLOTTU Bambar...;°)...
...Sigurþór gerði sundlaugina tilbúna til notkunar - áður en fór að hitna verulega - og mikið skratti var gott að stinga sér í kalda vatnið...
...sá þessa flottu rúmfatakistu í húsgagnaverslun - búin að leita lengi að svona - ætli ég verði ekki bara að hafa þetta sem smíðaverkefni fyrir hann Finn minn - hefur þá nóg að gera næsta árið....
..... og svo kom hún aftur - en sennilega er þetta önnur en sú sem ég veiddi á eldhússkápnum - þessi hefur 8 fætur - hin hafði bara 4 framfætur - misst hina í slagsmálum eða eitthvað... þessi birtist á stofuveggnum einn daginn - og hvarf svo bara aftur næsta dag...
... aðfangadagur jóla - Kerry og Kiddi komu í mat og við áttum bara kyrrlátt kvöld - Kiddi greyið varð að lesa á pakkana þar sem hann er yngstur af okkur .... okkur vantaði svo sannarlega eitthvað af börnum - enda 3 ömmur á staðnum...
...maturinn ekki af verri endanum - frekar en endranær hjá Unni - hangikjöt og skinka - með uppstúf, grænum baunum - einskonar malt og appelsín... það kom mér skemmtilega á óvart hvað hangikjötið var gott, því Unnur var búin að segja að það væri ekkert varið í það miðað við það íslenska - en þetta var bara fjandi gott kjöt skal ég segja ykkur...
....á jóladag fórum við í hádegismat til Kerry - börnin hennar tvö - Izzy og Jasper voru þarna líka.. það voru fiskréttir á borðum - fyrst var skelfisk-súpa - sem mér finnst orðin alveg ótrúlega góð - síðan fengum við "scallops" sem er hörpuskel - og loks kom heill humar - rækjur og ostrur ..... það tók okkur um það bil 3 tíma að borða þetta allt - allt gert meira og minna með puttunum - því allt þurfti að skelfletta - ég prófaði ostrur í fyrsta skipti - það var ekki beint geðslegt að setja þetta upp í sig og renna því niður - án þess að tyggja - en eftirbragðið - já - það var bara fjári gott..... gaman að prófa svona eitthvað alveg nýtt um jólin...
...Kerry stóðst ekki mátið - að leika sér smá með humarinn... en Unnur er háalvarleg að pilla rækju...
.... svona líta ostrurnar út - þessar hráu - hún var líka með grillaðar í skel með beikoni - en þær skildu ekki eftir eins gott eftirbragð..
...rækjurnar horfðu stórum augum að þetta lið sem þræddi eina og eina upp - pillaði hana og stakk upp í sig...
.... en nú er komið að heimferð - og ég verð að segja að ég hlakka rosalega til að sjá alla ungana mína stóra og smá aftur - búin að sakna þeirra rosalega.... þetta er búið að vera alveg yndislegur tími hérna hjá Unni og Sigurþór - en nú er tími til að koma sér heim - kannski ekki beint gaman fyrir þau - að um leið og börnin eru flogin úr hreiðrinu - þá sest ég upp hjá þeim...;°)...
.... Elsku Unnur og Sigurþór - ástarþakkir fyrir allt sem þið hafið gert fyrir mig - þið eruð alveg yndisleg hjón - sem allt viljið gera fyrir aðra - takk fyrir að leyfa mér að setjast upp hjá ykkur síðustu 3 mánuði - og ég vona að ég geti einhvern tíma endurgreitt ykkur á einhvern hátt ... Nú er tími fyrir ykkur til að fara bara að hugsa um ykkur sjálf - njóta lífsins saman - þið eigið það svo sannarlega skilið... love ya guys - your´e the best friends one can wish for...


okkar var anægjan Johanna min. Hlökkum til að sja þig næst.
ReplyDelete