Sunday, December 11, 2011

A hug is a great gift - one size fits all, and it's easy to exchange. ~Author Unknown



..... tengdapabbi var vanur að segja að ég væri "veðurkráka" - það kæmi alltaf rok og rigning þegar ég
birtist í Kópavoginum... þetta sannaðist þegar við Finnur ákvaðum að fara í smá ferðalag hér Down Under... Meiningin var að skreppa inn í landið - keyra til Kalgoorlie, sem er gamall gullnámubær, við vorum búin að plana ferðina - 3 dagar - ákveða hvað við ætluðum að skoða - hvar við ætluðum að gista og allt þar fram eftir götunum...  Nema hvað, þegar við vorum að leggja af stað, gerði þetta líka litla þrumu-og eldingaveður - allt fór á flot á leiðinni sem við ætluðum og viðvaranir voru lesnar í útvarpinu!!! Nú voru góð ráð dýr, við vorum búin að pakka í töskur og komin í ferðagírinn - ekki alveg tilbúin að fara bara heim aftur - svo við ákváðum að keyra upp með ströndinni - veðrið átti bara að ná rétt "upp" fyrir Perth... en það var eins og það elti okkur bara - ef við stoppuðum þá náði það í rassgatið á okkur - og á okkur skall ÞVÍLÍK rigning að við sáum varla út um framrúðuna... þessu linnti svo ekki fyrr en við vorum búin að keyra í eina 3 klukkutíma - shitturinn - ég held bara að tengdapabbi hafi rétt fyrir sér... ;°)...

..loksins þegar látunum linnti, stoppuðum við á bensínstöð og heilsuðum upp á þessa EMU fugla - alveg stórskrítnir...


.... við ákváðum að stoppa í litlum bæ sem heitir Dongarra (borið fram DONGRA!!), og ætluðum að fá hótelherbergi - en þar var allt fullt á öllum stöðum - vegna þess að kona hafði myrt 2 dætur sínar og síðan framið sjálfsmorð - allir gististaðir fullir af lögreglu - "forensic" fólki - sjónvarps- og blaðafólki..
En svo vorum við svo "HEPPIN" að rekast á eitt hótel sem hafði EITT herbergi eftir - þetta var í gömlu klaustri og leit alveg sæmilega vel út - utan frá séð... en restin af gestunum voru löggur og rannsóknarfólk - svo við vorum í miðri lögreglurannsókn í morðmáli... segið svo að maður lifi ekki spennandi lífi.....
En það koma nú svolítið skrítinn svipur á okkur, þegar við sáum herbergið - sem við þurftum að borga 12. þús. kr. fyrir... dæmi nú hver fyrir sig...


...stærsti plúsinn var kannski að það var "MINIBAR" - TV - og LOFTKÆLING í herberginu... sbr. myndin hér að ofan...


....daginn eftir ákváðum við að keyra aðeins inn í landið og fara leiðir sem við höfðum ekki farið áður - á þessum vegum eru mikið flutningar - kallaðir "road-train" - sem eru vörubílar með 3-4 tengivagna í eftirdragi.... ekki mjög gaman að lenda við hliðina á þeim - né mæta...

... við vorum á bílaleigubíl sem var hinn þægilegasti - Toyota Camry - og hann kostaði okkur ekki nema um 30 þús fyrir 4 daga...


.... á leið inn í landið keyrðum við framhjá korn- og hveitiökrum - svo langt sem augað eygði - spáðum mikið í það hvað lengi væri verið að slá þarna...;°)...

...þessir bændur sátu og spjölluðu við vegkantinn - og höfðu litlar áhyggjur af umferðinni sem þeyttist framhjá...

...við keyrðum framhjá nokkrum svona stöðvum - þar sem korninu er safnað í heljarninna þrær - þarna sést ekki nema lítið brot af lengjunni...

....við lentum í því að bjarga þessari eðlu frá því að verða undir bíl - konuræfill sem hafði stoppað - fékk hana undir bílinn hjá sér og það tók smá tíma að fá hana undan honum...


... hér eru bændur byrjaðir að "slá" kornakurinn - kannski ekki bestu vinnaðstæður - all á kafi í ryki og skít... en engar "smá" vélar...
Næsti bær sem við ákváðum að stoppa í og gista, heitir Moora - og þar tók ekki betra við með að fá herbergi... Finnur vildi endilega gista á svona "gömlu" hóteli með stórum svölum - hefur örugglega viljað fá tilfinningu fyrir hvernig "HÓRUNUM" leið þegar þær röðuðu sér við handriðið og tældu menn upp á herbergin í den tid...;°)...
Mér leist nú ekkert á hótelið sem við fundum - en ákvað samt að slá til og við leigðum herbergi fyrir aðrar 12 þús kr...






Framhliðin leit svo sem ekkert illa út - en við þurftum að leggja bílnum á bak við og fara þeim megin inn í hótelið - framhjá ruslatunnunum og draslinu - þegar inn var komið blöstu við veggir með bárujáni og á járninu voru - ja Finnur sagði ryðblettir - en ég held því fram að þetta hafi verið myglublettir... og það lá við að ég sneri við og segði NEI...



...svona litu nú svalirnar út og opið er inn í herbergið sem við leigðum dýrum dómum - ef þið skoðið vel getið þið séð skítinn á borðinu.... ekki mikið fyrir að þurrka af þetta lið... herbergið var eins og klefi í rússneskri afvötnunarstöð - ekki að ég hafi heimsótt slíka stöð - en ímynda mér að hún líti svona út... máttu samt eiga það að "fataskápurinn" var VEL loftræstur...

....baðherbergisaðstaðan var sameiginleg fyrir alla hæðina - og þar keyrði heldur betur um þverbak - skil bara ekki hvernig fólki dettur í hug að bjóða upp á þetta - og ég hafði alls enga löngun til að fara í sturtu - þó svo að full þörf væri á því eftir hitasvækju dagsins...




....ég ákvað bara að breiða upp yfir haus og sofa þetta allt frá mér - yfirgáfum svo þetta "fína" hótel fyrir morgunmat - tókum ekki séns á að hann liti nokkuð skár út en sjálft húsið....



....ekki spurning að maður tók eftir þessari auglýsingu.... vorum bara að fara í hina áttina og nenntum ekki að snúa við...


... ég tók þessa mynd alveg sérstaklega fyrir Þórdísi - ekkert smá flottur litur  á beljunum - væri til í að fá svona lit í hárið Dísa mín...

Unnur og Sigurþór buðu okkur út að borða þegar við komum heim - svona í tilefni þess að ég átti afmæli - aldur er afstæður - við fórum að rosalega skemmtilegan stað sem heitir Roly on the Ridge - þar horfir maður út yfir fallegan dal ....


....ég fékk mér nautasteik - og bara varð að smella mynd - flott skreyting - nú er ég að verða eins og Sigga frænka - alltaf að taka myndir af því sem ég borða...;°)... góðar Sigga mín....


....Unnur tók mynd þegar komið var með dessertinn til mín - og aldrei þessu vant - þá bara myndast ég alveg ágætlega - enda í góðu kompaníi með Finni mínum og....

 

..... með Unni og Sigurþór - takk fyrir mig - þið eruð algerar perlur og ekki slæmt að eiga svona vini...



.... að kvöldi 9. des. buðum við Hilmari, Söndru, Jónka syni þeirra, Jómba og Lóu í indverskan dinner - þetta var alveg yndislegt kvöld og gaman að hittast öll saman...


.... kvöldið eftir héldum við svo "litlu jólin" - þar sem Anna var á leið til Íslands yfir jól og áramót og Finnur fer í vinnuna eftir viku... við vorum með alveg EKTA íslenskt - lambahrygg, brúnaðar kartöflur, sósu, Ora grænar, rauðkál og svo auðvitað - malt og appelsín, sem by the way - ég FÉKK ekki að smakka þar sem maltölið hér er yfir þeirri prósentutölu sem ég þoli í áfengi...;°)... lét mér duga sódavatnið....


... eftir matinn eyddum við svo kvöldinu í að fylgjast með tunglmyrkvanum - en því miður er ég ekki með nógu góða vél til að taka svona myndir - svo þessar verða að duga.... Tunglið varð á endanum appelsínugult - stórkostlegt að sjá þetta svona í "beinni"...



.... En að öllu gríni og gamni slepptu - þá hefur síðasta rúma vika ekki verið neitt auðveld - þegar sorglegir atburðir gerast í fjölskyldunni, er erfitt að vera svona langt í burtu frá sínum nánustu - geta ekki tekið utan um og huggað.... En það er gott til þess að vita að ég á tvær frábærar stelpur og tvo frábæra tengdasyni - sem standa saman og eru til staðar hvert fyrir annað, einmitt þegar á þarf að halda. Ég er óendanlega þakklát fyrir þau öll og barnabörnin mín - og á þeim öllum get ég séð, að okkur Finni hefur tekist eitthvað gott og frábært í þessu lífi okkar...




....þið öll eruð það sem heldur mér gangandi og í góðum gír til að takast á við það sem lífið býður upp á hverju sinni - ELSKA YKKUR ÖLL og hlakka til að sjá ykkur... 
 



6 comments:

  1. Gaman að fá að fylgjast með þessu ferðalagi ykkar, fannst þessar myndir frá hótelherbergjunum alveg magnaðar, margt hægt að túlka sem "loftræsting" haha :) Hlökkum til að fá þig heim og gott að pabbi komst til þín í smá tíma :)
    Við erum öll svo heppin að eiga hvort annað að :)

    ReplyDelete
  2. Ahh, Jóhanna mín. Frábært hjá þér, bæði myndir og texti. Kærar þakkir,

    ReplyDelete
  3. Hæ ég skil ekki þetta kerfi hérna, var búin að skrifa fullt á vegginn og það hvarf þannig að ég vona að þetta komi núna;-) Þetta er mjög flottur litur á kúnum alveg sammála þér en ég hélt að þú værir að taka myndir af þeim af því að ég er svo mikill dýravinur hehe:-) Hvað er að fólki að bjóða upp á svona hótel, þvílíkur viðbjóður. Skil sko alveg að þú hafir ekki haft list á því að fara þarna í sturtu. Ég hefði nú ekki farið í sturtu þarna, og þá er nú mikið sagt hehe. Þú ert sko heppin að eiga þessa 2 frábæru dætur, og þeirra maka og börn, en þau og við hin erum heppin að eiga þig að. Þú ert svo jákvæð og skemmtileg og alltaf er hægt að tala við þig um allt og ekkert. Ert alltaf til staðar fyrir alla og það geta allir treyst á þig. Það vantar mikið að hafa ekki afa og þig hérna en það styttist í að þú komir heim. Knús á ykkur

    ReplyDelete
  4. Og þetta var ég Dísa sem skrifar þetta, eins og ég segi er ekki alveg að fatta þetta kerfi hérna.

    ReplyDelete
  5. Jóhanna mín, þetta var snildar blogg hjá þér. Hef kynnst mörg svona hótel herbergi í Ástralíu..... þetta er sko ekki það versta!.... Við erum svo heppin að hafa þig - tek undir allt sem Þórdís sagði/skrifaði. Sakna þíns mjög! ´Njótu það sem eftir er af tímanum í WA og knúsaðu þetta lið fyrir mig...

    ReplyDelete