Friday, September 30, 2011

One man´s brick, is another man´s brack

Dagurinn í dag fór að mestu leyti í að heimsækja endurvinnslustöð - eða sorpgeymslustöð - eða brick brack - eða eitthvað svoleiðis....  Þarna ægir öllu saman - en rosalega var samt gaman að skoða þetta og margt sem ég hefði alveg getað hugsað mér að eiga... En ég lét samt eiga sig að kaupa nokkuð - enda BARA með EINA ferðatösku með mér..
Sigurþór var að leita eftir hurðum en því miður voru engar sem pössuðu fyrir hann... svo við skruppum í alvörubúð og þar  sá hluti sem ég hefði sko alveg getað hugsað mér að eignast - en - ég er sko stolt af hvað ég hélt fast í budduna og keypti ekki svo mikið  sem einn snaga...
Á morgun erum við að spá í að skreppa á markað í bæ hér ekki langt frá, sem heitir Kalamunda  - það er eitthvað við markaði sem dregur mig á staðinn....
En hér koma nokkrar myndir  af sorpstöðinni og alvöru búðinni - þið megið giska á hvort er hvað...;°)...



                                        Þetta er konan sem rekur staðinn - takið eftir hattinum...
              Væri ekki amalegt að eiga eina svona eldavél - væri hægt að sletta í form... kostar bara 300 þús..
Væri alve til í svona baðkar...

2 comments:

  1. Sammála þér með eldavélina - hún væri sko flott! Á enn eftir að tengja Rafha vélinna hjá mér - kannski tekst það fyrir jól.... er ágæt að hafa auka borð plás - eldhúsið hjá mér er mjög líkt brick og brack staðin sem þið fóru á. Bið að heilsa - love these posts! keep it up...

    ReplyDelete
  2. +eg bíð alltaf spennt eftir næsta póst.....

    ReplyDelete