Thursday, November 10, 2011

Discover wildlife: be a teacher!

Það var ömmu og afadagur í skólanum hjá Unni í gær, og að sjálfsögðu mætti ég á svæðið... krakkarnir tóku á móti manni og buðu okkur velkomin í skólann sinn... Svo sungu þau fyrir okkur og loks buðu þau upp á te og kökur... bara gaman - þó svo að ég blóðöfundaði ömmurnar sem fengu knús frá barnabörnunum - guð hvað ég saknaði minna...

 ...þarna er Unnur með krakkana sína fyrir aftan sig...



...ég ákvað að nú væri tími  til að reyna að fara að "bútast" eitthvað - Unnur á fjörgamla Bernina  saumvél - saumar bara áfram - eða ég hef alla vega ekki fundir afturábak takkann á henni - en sporið er fínt og þó hún hafi ekki "yfirflytjara" eins og Pfaff vélin mín - þá gerir hún sitt gagn -  ég verð bara að VANDA mig meira - sauma  hægar - sem er ágætt fyrir mig - alla vega segir Finnur að ég sé alltaf langt á "undan" sjálfri mér...:°)...
Nema hvað - ég skrapp náttúrulega í  búðaleiðangur - vantaði  efni og svoleiðis - og þá keyrði ég framhjá þessu götuskilti....

...er einhver sem þekkir einhverja Gunnu Matta - það er nefnilega í tísku hér að STELA götuskiltunum...  er að spá í að taka rúnt og vita hvort ég finn ekki Johanna street....
Svo nú er ég: "ein sit ég og sauma - enginn kemur að sjá mig..." ;°)... allar jólagjafir heimatilbúnar þetta árið...

No comments:

Post a Comment