.... akkúrat eins og segir í fyrirsögninni - helginni var eytt í að gera eitthvað alveg "pointless" - bara hafa gaman af að vera til...
Á föstudaginn bjó ég til þessa líka fínu "ostaköku" - smakkaðist nú frekar eins og súkkulaðimús - en hvað um það - hún var bara góð á bragðið - með súkkulaði og kirsuberjum - slatti af rjóma með og allir sáttir...
Þetta var rigningahelgi - svo ekki mikil garðvinna í gangi hjá okkur Unni - en Sigurþór er þess mun duglegri - nánast búinn að gera sundlaugina klára - búinn að rífa upp allt illgresið sem ég var búin að humma fram af mér að gera... duglegur strákur...
Á sunnudaginn ákváðum við að skreppa á útimarkað - undir þaki þó - þar var allt til sölu - frá ávöxtum upp í traktora - gamalt og nýtt... en ég er algerlega búin að missa viðleitnina til að kaupa dót - geng bara um og skoða - sé eitthvað sem mig langar ROSALEGA í - en svo - hvern fjandann hef ég að gera við þetta dót - ég á EKKERT nema dót!!! - svo ég labbaði út með einn lítinn smekk - bara varð að kaupa hann handa Rúnu - á honum stendur: Don´t make me call Grandma...;°)... hí hí...
Við ákváðum svo að fara bara upp í sveit í "lunch" - fundum þennan frábæra litla stað - sveitabær þar sem framleiddir eru alls kyns ákvextir og úr þeim gerðar sultur og Cider sem einverra hluta vegna var bannaður fyrir MIG... hann var eitthvað yfir mörkum í áfengismælingu - svo ég fékk BARA eplasafa með ginger - sem var sennilega líka mun betra...;°)... og að sjálfsögðu voru keyptar sultur...
...þessi auglýsing var fyrir utan veitingastaðinn - góður húmor hjá bændum.... og ekki var hann síðri á matseðlinum - bendi ykkur á að lesa NEÐSTU línuna... That´s the way to do it.... vinsamlega komið þessu á framfæri við íslensk veitingahús...;°)...
...veit ekki alveg á hvað þau voru að horfa - en finnst líklegt að ég hafi staðið í veginum fyrir að þjóninn gæti borið á borð og hann eitthvað verið að klaga í mannskapinn - heyrnarlaus hvað....
....tvær góðar saman - alveg yndisleg stelpa hún Anna...
...ég bara varð að taka mynd af þessu farartæki - hef ekki glætu hvaða sort þetta er - enn OMG - myndi ekki láta sjá mig dauða í þessu - jæja og þó - ef Steina mín væri með - minnir á ferðalag til Álandseyja hér um árið...;°)..
...við keyðrum framhjá stað þar sem skógareldur hefur farið yfir - svolítið "krípí" að sjá þetta... og kannski er þetta það sem ég fæ að upplifa í þessari ferð minni ....
...þessir eru svo yndislegir - komst bara ekki nógu nálægt - svo myndin er ekki alveg skýr - já þeir eru "ASNA"legir þessar elskur - en vinalegir...
Unnur keypti jarðarber á markaðinum - og þegar hún opnaði öskjuna kom þetta líka risa jarðarber í ljós - ORGANIC eða sterar - já maður spyr sig... en þau eru fjandi góð á bragðið ...
Og svo kom mánudagur - Unnur og Sigurþó farin í vinnuna - ég er búin að þurrka af og gera húsverkin að mestu - bræddi að vísu úr ryksugunni - svo ég verð að bíða eftir að Sigurþór komi úr vinnunni - til að laga hana...
Og ég er komin með gömlu saumavélina hennar Unnar upp á borð - nú er bara að sjá hvort hún virkar sæmilega og hella sér svo út í bútasauminn - jólin á næsta horni - og mig vantar jólagjafir...
Ryksugan er i ofnotkun, ekki ryksuga!!!! Flottur postur!
ReplyDelete