....samvinna er málið...
....framundan er rifan sem þeir nota til að fara í búið sitt...
....bitinn heldur stór fyrir rifuna....
....þessir klufu bara bitann í tvennt - snillingar...
..Við Unnur skruppum í bæinn - það var eins konar Carnival í gangi í einu hverfinu - svona eins og Lummudagarnir heima.... fleiri hundruð manns á ferðinni... Sigga, þú ættir að þekkja þessa götu segir Unnur....
.... en samt tókst okkur að rekast bæði á Önnu og Kidda..... sætar mæðgur... náði ekki að mynda Kidda með...
...það var alls kyns dót til sölu og sýnis - hér hefur einhver tekið til í efna-og garndótinu sínu - og nýtt það til að prjóna utan um stólana - sniðug hugmynd...
....þennan sófa sáum við reyndar inn í einn búðinni sem var orpin - alveg hrikalega girnilegur .... get allveg ímyndað mér að kúra í þessum fyrir framan sjónvarpið...
....þessir voru að taka þátt í þraut - þar sem ná átti 5 eplum upp úr tunnu fullri af vatni... var hressandi fyrir þá, því það var assgoti heitt úti...
....rákumst á þennan - er að hræra í Paellu - engin smá panna og ilmurinn eftir því...
...þessi voru að mála manneskjur svo þær nánast hverfa inn í bakgrunninn...
...takið eftir klippingunni á konunni í röndóttu buxunum... útgangurinn jeminn eini...
...þessi mynd er sérstaklega fyrir hannyrðakonur - góð hugmynd til að nýta alla afgangana...
...ég bara varð að taka mynd af þessum bíl - eins og gamli Falconinn hans pabba - nema þessi er skelfilega skitugrænn á litinn - illa farið með fallegan bíl...
....og svo er bara að fara að skella á grillið - góður dagur að kvöldi kominn...
No comments:
Post a Comment