Sunday, November 13, 2011
Do not regret growing older. It is a privilege denied to many.....
Í gær, sunnudag, fórum við Sigurþór og Unnur með Hilmari og Söndru í "lunch" hjá Burmíska eldriborgarafélaginu... mikið gætu nú gamlingjarnir á Króknum lært af þeim, þau hittast alla mánudaga og borða saman morgunmat/hádegismat, spila bingó, dansa línudans, syngja og spila.... Einu sinni í mánuði er svona "lunch" eins og við fórum í, þá er byrjað á að dansa pínu meðan maturinn er gerður klár, svo þegar búið er að borða er sungið og spilað á gítar.... Afgangurinn af matnum er svo seldur og ágóðinn gefinn til munaðarleysingja-heimila eða önnur líknarverkefni...
....þarna er Sandra hans Hilmars komin í banastuð að dansa línudans - meðan hún bíður eftir pottunum...
....þrír "JÚNÍOR" eldri borgarar í aðlögun...
....þeir eru jafn glysgjarnir - gamlingjarnir hér og heima .... fæst orð bera minnsta ábyrgð um ágæti þeessarar borðskreytingar...
....þetta er svo kokkurinn - að selja afganginn - alveg hrikalega góður matur....
....það var farið í smá keppni - viskíflösku var stillt upp á gólfið - svo átti fólk að henda klinki í áttina - sá sem komst næst flöskunni - fékk hana - en ágóðinn fór í góðgerðarmálefnið...
....kórinn sem hélt okkur við efnið í söngnum - takið eftir konunni með gítarinn - þetta er aðaldriffjöðrin - komin langt yfir áttrætt - spilar samt á rafmagnsgítar - snillingur...
...við skruppum aðeins í bæinn eftir matinn - fórum í hverfi sem minnti mig mest á 101 Reykjavík - skrítnar búðir og skrítið fólk - eða alla vega öðruvísi... Ég sá þessa stóla og þá rifjaðist upp fyrir mér að pabbi smíðaði svona stóla og mamma saumaði sessurnar - ferlega þægilegir stólar...
....ég hefði nú ekkert á móti því að eiga einn svona - væri flott á honum á Aðalgötunni....
....hér er matseðill á kaffihúsi í götunni - þetta eru "desertar" sem nefndir eru eftir hljómsveitum og ef þið kíkið vel þá sjáið þið nöfnin Eskimo Joe - en í henni spilar Nick hans Hilmars og Söndu - og svo Snowman, en í henni voru Olga og Ross... gaman að þekkja svona "frægt" fólk...;°)...
....við kíktum svo í Burnswood - þar er heljarinnar flott hótel og gígastórt spilavíti - því miður mátti ég ekki taka myndir í spilavítinu - en þessi mynd er úr andyri hótelsins svo þið getið ímyndað ykkur hvernig restin er....
...Við létum eftir okkur að prófa einn spilakassa - töpuðum 15 dollurum samtals - og ég var fljót að sjá að þetta er SKO ALLS EKKI fyrir mig - fiðringurinn í maganum sagði allt sem segja þarf - þoli ekki að tapa og yrði örugglega spilafíkill ef ég léti það eftir mér... betra að skoða bara myndir...;°)...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

No comments:
Post a Comment