Á Íslandi snýst allt um jólin á þessum tíma - en hér - ja hér er bara alls ekkert jólalegt... það eru skreytingar í búðum og út á götu - en það vantar eitthvað.... Það vantar rökkrið - snjóinn og kuldann - en mest af öllu - það vantar ungana mína... ég verð að viðurkenna að ég er með heimþrá núna - fá tilfinninguna fyrir jólunum - baka smákökur og laufabrauð með fjölskyldunni - skrifa jólakort og kaupa jólagjafir - kveikja á kertum og hengja upp jólaskraut... Jólin og undirbúningurinn á Íslandi er engu líkt - fallegur tími með ró og frið - ef maður leggur sig niður við að njóta þess....
Já - ég get svo sem látið mig dreyma heim - en ég er hér - Down Under - hef gott fólk í kringum mig - og ég verð bara að sætta mig við - að ÞAÐ SNJÓAR EKKI Í ÁSTRALÍU UM JÓLIN....;°)...
Þetta verður ný upplifun og maður hefur gott af breyta til - kann þá líka betur að meta það sem maður hefur....
Við Unnur fórum í "helgafrí" niður að strönd -- gistum á hóteli 2 nætur - og notuðum svo laugardaginn til að ramba í búðir og kaupa gjafir...
...risajólatré í einu "Mollinu" og jólasveinn sem tekur á móti óskum krakkanna .... þetta bara passar ekki við 30 stiga hita - allir á stuttbuxum og berfættir í töfflum...;°)...
...ég bara varð að taka mynd af þessum skóm - ÞÓRDÍS ÓSK - þetta er fyrir ÞIG....;°)...
Á sunnudagsmorgun fórum við niður að ströndinni - þar var allt fullt af fólki - enda hitinn farinn að stíga og stefna á 30° ... Upp úr hádeginu kemur líka hafgola - eins og heima ....
... ég er ekkert hissa þó hákarlarnir ruglist á mannfólkinu og SELUM - allir í svörtum búningum - liggjandi á brettum... nammi namm....
.... "Baywatch" var á sínum stað - tilbúnir í að bjarga fólki sem ekki kann fótum sínum forráð...
... það var sundkeppni í gangi - fyrst var synt út að bauju og til baka - hlaupið upp ströndina og bretti sótt - síðan út í aftur og sami hringur - hörkulið...
...þetta voru bara krakkar - 14-15 ára virtist vera - en krafturinn og eljan - skipti engu þó öldurnar skelltu þeim áfram...
.... við skelltum okkur svo á handverks- og antík sölu í risastórri höll - og Guð minn góður - hvað það er mikið til af dóti....
... mér varð nú um og ó, þegar ég leit yfir borðin og sá hluti sem ég á sjálf upp í skáp heima - selda dýrum dómi sem antík!!! .... ÉG ER SEM SÉ - ORÐIN ANTÍK....
nei ekki antík Jóhanna heldur collectable!
ReplyDelete